Actions speak louder than words…

ecfc47255018196254ef2687ca41e6e2

Actions speak louder than words.. Þetta er hugtak sem við þekkjum vissulega flest.

Ég hef samt verið að hugsa rosalega mikið um það og að vissu leyti get ég ekki verið alveg sammála þessu. Auðvitað sýnir hegðun fólks hvernig það er og hversu mikið það þykir í alvöru vænt um þig.

Orðin geta hins vegar verið svo ótrúlega merkileg og falleg að heyra.
Oftar en ekki hugsum við eitthvað jákvætt eða fallegt um manneskju sem okkur þykir vænt um eða jafnvel um einhvern ókunnugan og við hugsum síðan bara ‘æj hún veit þetta örugglega, hún veit hversu mikið ég elska hana – hún veit að hún er með fallegt hár’. Þótt að einstaklingarnir vita þetta, þýðir ekki að það sé ótrúlega gott að heyra það.

Orð hafa ótrúleg áhrif á okkur og það er alveg magnað hvað jákvæðu og góðu orðin geta lyft manni upp. Bæði þeim sem að segja þau og þeim sem heyra þau.

En þá er líka mikilvægt fyrir okkur að hrósa okkur sjálfum, við þurfum að reyna að vera betri við okkur sjálf. Við þurfum að elska okkur sjálf svo að við getum orðið að bestu útgáfu af okkur sjálfum.

Eftir því sem að ég eldist meira þá kemst ég meira og meira af því hversu stutt lífið er í raun og veru. Við vitum ekki hvenær okkar seinasti dagur er, ég hef séð heimin taka svo mikið af ungu fólki frá okkur. Sem er ótrúlega hræðilegt og ósanngjarnt.
Ég hef áttað mig á því að ég þarf að vera svo mikið duglegri að segja þeim í kringum mig hversu mikið mér þykir vænt um þau og afhverju mér þykir svona mikið vænt um þau.
Ég þarf að vera duglegri að hrósa ókunnugum í staðinn fyrir að hugsa bara ‘vá hvað hún/hann er með fallegt bros’. Hrós til ókunnugum gæti breytt öllum deginum hans til hins betra því við ekkert hvað er í gangi í hausnum hjá öðrum.

Við vitum í rauninni ekkert hversu mikil áhrif við erum að hafa á líf annarra því að þau sem við erum að hafa áhrif á segja okkur ekki frá því – því þau eru viss um að við vitum það.
Þannig að frá og með deginum í dag ætla ég að vera duglegri að segja þeim í kringum mig að ég elski þau og afhverju ég geri það.

Ég veit að mörgum finnst svona alltof væmið en við vitum ekki hvenær lífið tekur einhvern annan af okkur og oft sitjum við eftir með fullt af ósögðum orðum, þess vegna skulum við segja orðin okkar í dag.

xx

1668089461320423100316

 

Posted by

22 yr old, mother, makeup artist, blogger, university student.

Leave a comment